Tradenbloggen.is
Flottar síður !
05.10.2008 16:26:42 / tradenbloggen

Surprise!!!!

Það var laugardaginn 20. sept sem ég vaknaði eldhress að vanda og fór að vesenast við að betrumbæta húsið mitt og fleirra. Eyþór bróðir og Bjarney voru búin að nefna við mig að rúlla í bíó um kvöldið og var að hugsa um það allan daginn en ákvað svo að bjalla í þau og segja þeim að ég ætlaði að spara aurinn því fótboltaballið væri helgina eftir. Dagurinn leið og um kl 16 var ég orðinn eh eirðarlaus og ákvað að hendast í að bóna bílinn minn. Ég var búinn að því um hálf 7  og hentist inn til að græja svínasteikina í ofninn. Skaust til mömmu að fá lánaðar kartöflur, þar var hún með Patrek og ég spurði hana hvort Eyþór og Bjarney hefðu farið í bíó....og hún svaraði því játandi. Fór heim og fann svo símann minn sem ég gleymdi inn í herbergi og á honum voru 5 ósvöruð símtöl, sem er ekki venjan um helgar. Ég sá að Ómar og Geir bróðir skiptu með sé þessum 5 símtölum og ég bjallaði fyrst í Ómar. Samtalið: Ó: Verðuru heima í kvöld? P: Já Ó:Flott við erum að fara á rúntinn og ætlum að kíkja á þig. P: Já okey sjájumst þá.
Svo hringi ég strax í Geir. Samtalið: G: Sæll verðuru heima í kvöld? P: eee já (var orðinn dáldið undrandi að 2 hafi boðað komu sína í heimsókn sama kvöldið) G: Já glæsilegt, er nefnilega á leið í Grindavík. Verð að kíkja á húsið þitt hef ekki séð það áður. P: Já frábært, sjáumst í kvöld. Eftir símtölin fer ég alveg grunlaus að hugsa hvað væri í gangi, kemur venjulega enginn í heimsókn en nú væru 2 búnir að boða komu sína, og Geir bróðir er venjulega að vinna á laugardagskvöldum. En ég hendist í að taka til og hafa húsið svona boðlegt gestum. Steikin langt komin í eldun og ég hendist í sturtu. Allt gerist þetta á sama klukkutímanum. Svo var ég bara nýkominn í sturtu og var að sápa mig þegar barið er að dyrum. Ég hugsa....nei ekki er Ómar kominn strax? Ég drífi mig í að skola og þurrka og á meðan er barið fast að dyrum og dinglað til skiptis.....djö ég verð bara að hendast til dyra með handklæði utan um mig eða á naríunum til að hleypa fólkinu inn. En það var eh sem sagði mér að hendast í fötin samt. Svo er ég á leið til dyra þá hringir Palli félagi minn á sjúkrabílnum og ég er alveg að fara að svara þegar ég opna hurðina, þá er Palli fyrir utan og Maggi uppgallaðir á sjúkrabílnum. Ég heilsa þeim og spyr hvað ég get gert fyrir þá, en þeir labba bara inn á móti mér og segja fátt. Ég fer að hlægja og spyr hvað þeim vanti en engin svör. Svo dregur Palli upp sárabindi og réttir Magga það og Palli fer í það að halda mér. Ég byrja að streitast aðeins á móti (ekki mikið samt því ég vildi ekki slasa þá ) :) en gef svo eftir. Þeir segjast svo ætla að taka mig smá rúnt. Ég slaka á og hugsa með mér: jæja þetta er stórafmælishrekkurinn. Við göntumst í hvor öðrum á stórafmælum. Svo kalla ég á þá að þeir verði að slökkva á ofninum og taka húslykilinn með sem ér í vinnubuxunum. Svo flytja þeir mig á börum út í sjúkrabíl og inn í bíl eru fleirri hendur komnar að verki. Heyrði að Gunni væri einn af þeim en vissi ekki meir. Svo byrja þeir að vesenast í mér. Henda kælipoka inn á mig og græja eitthvað á eyrun á mér. Ég hló allan tíman og hafði gaman af. Svo hnerraði einhver nokkrum sinnum og ég fékk eh gusu yfir mig. Svo var bíllinn stöðvaður einhverssaðar og ég hugsaði: hvert í andsk eru þeir að fara með mig :) Svo förum við inn í eh hús og ég heyri eh skvaldur....alveg grunlaus. Svo slaka þeir niður börunum og ég byrja að rífa frá augunum sárabindið. Og þá ........SURPRISE !!! Tæp 40 manns komin saman heima hjá Eyþóri og Bjarney...allir hlægjandi af mér :) Ég sá ekki alveg hverjir voru mætti og í hvaða húsi við vorum í í fyrstu því ég var gleraugnalaus. En ég áttaði mig fljótlega og hló mikið....svo tek ég eftir því að ég er með eh dót á eyrunum. Það var hálfur pappadiskur málaður rauður annarsvegar og merktur X-S og blár hinsvegar merktur X-D .....svo var ég með einhverja fáránlega skykkju á bakinu, en það var sjálfstæðisfáninn. Svo var sunginn afmælissöngurinn. ( verð að viðurkenna að maður var pínu hrærður þarna á þessu mómenti ) En á meðan á afmælissöngnum stóð þá reyndi ég að finna kveikjara til að kveikja í fánanum :) heheheheheheheh

Svo var mér rétt glas með rauðum drykk í....en þá varð ég að biðja um 10 mín pásu til að fara heim að setja kolluna á hausinn og henda upp í mig tönnunum og fara í almennileg veisluföt.

Þegar ég kom aftur þá sá ég hverjir voru mættir og ég tók eftir því að það voru flestir þeirra sem ég var búinn að setja á gestalista sem ég var búinn að gera uppkast af því ég var búinn að hugsa um að bjóða til veislu. Svo var búið að græja bollu og frábæra kjúklingasúpu að hætti Jóhanns Þorgríms :) svo var komið með bjór, osta og snakk.....og VÁ
Svo voru bændurnir í Bjarmalandi klár með slædsjóv um kallinn :) og upptaka frá Erni á sjúkrabílnum var sýnd þar sem ég komst að því að allt sjúkraliðið var mætt heim til að flytja mig á brott. Örn sá um að taka myndbandið og hnerra og frussa saltvatni framan í mig :)hehhehehe
Svo kom Ómar Davíð með eina bestu ræðu sem ég hef heyrt og fór hann yfir víðan völl.... og kom því að inn á milli að súpan hans Issa var góð :)... Verst er að hann man lítið eftir ræðunni, enda kallinn orðinn þreyttur eftir smalamennskuna fyrr um daginn. Svo komst ég að því að það væri borð fullt af pökkum sem ég þyrfti að sinna....ussss ég átti ekki til orð. Ég hélt þarna að fólkinu hefði verið smalað saman í skyndi til að koma mér á óvart en neiiiii. Svo var ég beðinn um að kenna fíbladansa og gat ég ekki skorast undan því. Svo var dansað og djammað og hlegið mikið til kl 01 og þá var haldið á ball í Salthúsinu þar sem Eyþór og Bjarney buðu mér á og þar var hellt í mig.....svo var haldið á Lukku Láka og þar hélt fjörið áfram.

Þetta kvöld er eitthvað sem mun aldrei gleymast. Höfundur þessa alls er Eyþór bróðir og systkynin mín ásamt foreldrum gáfu mér veisluna. Þau nutu aðstoðar Bjarmalandsbænda, Issa og co, Tomma og co og fleirri til að gera þetta að veruleika. Og þetta hafði verið í vinnslu í heilan mánuð án þess að ég grunaði eitthvað. :) Svo var Eyþór og Begga svo klók að komast í tölvuna heima þegar ég var ekki heima til að ná gestalistanum sem Begga vissi að. Eyþór hringdi fyrr í vikunni í mig og sagði að netið heima hjá þeim væri bilað og hann þyrfti að komast í tölvu. Ég trúði því en benti honum á að lykillinn af húsinu væri heima hjá Mömmu en þar kæmist hann líka á netið. Hann sagði að netið þar væri líka bilað og ég gleypti við því :) hehehe
Svo frétti ég það að ég hefði verið vaktaður allan laugardaginn. Þau sóttu stóla og borð í Framsóknarheimilið og ég spurði Eyþór  hvort þeu hefðu ekkert verið hrædd um að ég sæji þau hefði ég verið á ferðinni en þá sagði Eyþór mér það að Vilborg systir hefði verið á bíl í götunni hjá mér að vakta mig og tilbúin að hringja í hann svo hann gæti forðað sér.

Klókur strákur :) Takk fyrir Eyþór

Eyþór, Bjarney, Patrekur, Geir, Ellen, Vilborg, Siggi, Kolla, Íris, Brynjar, Mamma, Sæmi og Pabbi takk kærlega fyrir veisluna.

Ómar, Begga, Jóhann Þorgrímur, Hjördís, Tommi, Áslaug, Gummi, Rúna, Guðrún, Ragnheiður, Siggi, Berglind, Sigríður, Gunnar Már, Sigga, Siggi, Gulla, Örn, Svana, Gunni, Palli, Ólöf, Maggi, Heiða, Bogi, Gauja, Hafþór, Agnar og Valdís
Takk kærlega fyrir mig :)

Kveðja
Tradenmannen

» 14 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 23:36:12 / tradenbloggen

Ertu með skemmdar ennisholur???

Ég byrjaði þennann merka dag á því að hjóla út í bakarí og kaupa mér brauð sem er varla í frásögur færandi. Nema hvað að ég kaupi hálft fransbrauð eingöngu og reiði upp veskið og afgreiðsludaman segir 330 krónur........þrjúhundruð og þrjátíufokkingskrónur!!!!! Þetta er rán! Átta helvítisbrauðsneiðar taldi ég upp úr pokaræflinum 41,25 kr stykkið. Ekki nóg með það að það er varla hægt að smurja brauðið frá bakaranum því það er svo laust í sér og sneiðarnar litlar. Mig minnir að heill fransbrauðspoki frá Myllunni kosti 260 krónur ca. Svo ég spyr bakarann hér með: Ertu með skemmdar ennisholur ????

En dagurinn í dag var góður. Byrjaði hann á því að sofa út. Fór svo í bakaríið eins og fyrr greinir og rændur þar. Horfði á formúluna. Mamma bauð mér svo í pönnsur. Þar fékk ég pakka frá Patreki Breiðfjörð, mynd frá skírninni hans í ramma og vasaljós. Svo fór ég heim og þangað komu Ólafur Reynir og Bríet María með mömmu sinni og Ólafur var búinn að útbúa snilldarpakka handa mér. Mér skilst að hann hafi beðið spenntur eftir því að færa mér hann :) Pakkinn var fallega innpakkaður með flottu korti sem hann bjó sjálfur til.....ég skaut nú á það að þetta væri lúður eða svona horn til að kalla í því pakkinn var þannig í laginu.....en nei sagði Óli. Svo opnaði ég pakkan og í honum var DRULLUSOKKUR !!!!! Hehehehehehehehehehe þessi drengur er snillingur !!!!! Hann fattaði alveg upp á þessu sjálfur. Málið er að fyrir tæp 2 árum fórum við í ferð norður á Hveravelli á þorrablót og á leiðinni vorum við Óli í svona uppnefni leik.....ég sagði Óli belja og hann svaraði alltaf um hæl með einhverju skondnu eins og Pétur gúrka og Pétur sokkur .....drengurinn alltaf með eindæmum snöggur að svara og orðheppin. Svo var þetta búið að ganga í smá tíma þessi leikur okkar og svo segir hann Pétur DRULLUSOKKUR heheheheheh og við grétum úr hlátri bókstaflega......Ómar varð að hægja á bílnum því við hlógum svo mikið....þökkum bara fyrir að við mættum ekki bíl þarna á þessu andartaki :)
Þetta er kveikjan af gjöfinni sem ég fékk og þetta er bara tær snilld.....svo þegar þau voru að fara þá segir hann mér að hann sé búinn að baka köku handa mér og hún verði í eftirrétt, en þau buðu mér í mat í kvöld. Svo var það dýrindis matverður í Bjarmalandi sem toppaði frábæran dag þar sem Ólafur Reynir kom með kökuna sem hann bakaði sjálfur og var búinn að setja texta á sem stóð: Pétur 30 ára og eitt kerti á kökunni sem ég blés svo á :).......maður var bara orðlaus og pínu hrærður :) Hvar væri maður staddur ef maður ætti ekki svona góða vini ? Maður bara spyr sig. Ómar blandaði svo handa mér Stroh sem rann vel niður eftir góðar kræsingar.
Takk kærlega fyrir mig Bjarmalandsfjölskylda....þið eruð frábær!

Mig langar að þakka öllum þeim sem senduð mér kveðju á sms, msn, facebook og í síma.
Ég yrði blankur ef ég ætti að svara öllum sms-unum :)

Spakmæli dagsins: Sjaldan fara sköllóttir í hár saman

Minni svo á könnunina hér til hliðar ;)

Bestu kveðjur
Tradenmannen

» 16 hafa sagt sína skoðun

07.09.2008 15:50:50 / tradenbloggen

Jæja góðir hálsar og aðrir líkamspartar!

Jæja nú er sumarið búið og haustið farið að láta til sín taka og þá er kominn tími á blogg. Margt og mikið búið að gerast í sumar og ætla ég ekki að reyna fara yfir það hér í smáatriðum :) Ef ég gerði það þá myndi sennilega netþjónninn fara yfirum og hætta störfum...sækja svo um sem veitingaþjónn á Lukku Láka.

En eitt er þó víst að ég ætla að fara yfir sumarið í grófum dráttum...því ég er svo hrifinn af grófum dráttum.....djö sagði ég þetta .....sjæssss

Hvað gerðist?

Jú ég fór hringinn í kring um landið á 3 dögum með tjaldvagn vinkonu og syni hennar. Landið er geysifallegt á hraðferð svo mikið get ég sagt. Við stoppuðum á Egilsstöðum og dvöldum þar í 2 nætur í Hallormsstaðarskó.

Ég fór til Hollands í 3 daga á námskeið með Tomma og Einari. Við skoðuðum land og þjóð og leist mér vel á Hollandið. Sérstaklega leist mér vel á Amsterdam og rauða hverfið en þar var margt að sjá en ég lét það alveg eiga sig að heimsækja kynlífsherbergin hehehe þó svo að freistingaranar hafi svo sannarlega verið til staðar. Fórum svo frá Hollandi til Kölnar í Þýskalandi í lest og flugum þaðan heim. Frábær ferð með frábærum félögum.

Hápunktur sumarsins var þó 3tugs afmælisveisla Bjarmalansdsbóndans Ómars Davíðs Ólafssonar.....það er veisla sem seint verður toppuð. Ég var plataður til að vera veislustjóri og ég borgaði Ómari fyrir það með smá myndasýningu og einni sögu um kappann. Ekki leiðinlegt það :) hehe. Annars voru allir súperkátir í veislunni...frábært fólk...frábær matur....frábær bolla....frábær tónlistaatriði....flott brenna.... frábær brekkusöngur (þó svo að ég muni lítið eftir brennunni og söngnum, myndir af því tala sínu máli) hehe

Veislan hjá bóndanum toppaði meira að segja meirihlutaskiptin í sumar en við komumst til stjórnar í bænum eftir um 8 ára minnihlutasetu. En ekki orð meira um pólitík.....hún er orðin leiðinleg að mínu mati......spurning um að fara hætta því rugli.

Svo voru það Sandgerðisdagar sem ég Ómar, Begga og Þórunn kíktum á......vá hvað það var gaman a balli í Sandgerði. Á móti sól spilaði og þeir voru alveg ágætir.....nema svo kom einhver DJ í hléinu og setti húsið á hvolf með flottri tónlist aðalega 90'' tónlist en í bland við nýja. Ég vissi varla hvort ég væri á himnaríki eða bara í Sandgerði...enda sá Begga það manna best að ég var að fíla tólistina..hún bara hló af mér.

Annað sem er að frétta ......... nú er skólinn byrjaður og ég er að taka rafvirkjann í kvöldskóla. Er að taka einhverjar 12 einingar þessa önnina. Nóg um að vera...vinna..skóli...éta...skíta....sofa svona gengur þetta :) hehe SKEINA!!!!

En gott í bili...ég lofa því að blogga vel á næstunni. Þakka þeim sem rifu mig af stað í bloggheima aftur :)

Spakmæli dagsins:
Oft hrekkur bruggarinn í kút.

Bestu kveðjur
Tradenmannen

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 21:02:37 / tradenbloggen

Þessar þjóðir fóru áfram

Ég spáði að áfram færu:

Ísland             Rétt
Svíþjóð           Rétt
Úkraína          Rétt

Sviss
Tékkar
Hvít Rússar
Latvía             Rétt
Króatía           Rétt

Búlgaría
Danmörk        Rétt

Þessar þjóðir fara áfram:

Úkraína
Króatía
Albanía
Ísland
Georgía
Danmörk
Svíþjóð
Latvía
Turkey
Portúgal

Hehehehe 6 af 10 rétt !!! Það er nú ágætis árangur hjá mér ehaggi?
Ísland áfram að sjálfsögðu hvað annað og ég spái 6 sæti !


» 18 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 19:47:33 / tradenbloggen

Júróvisjón

Jæja nú sit ég einn heima og horfi á Júróið, mér líkar það vel því það má lítið trufla mig við áhorfið :) Ég gef mér þó tíma til að blogga smá um keppnina jafnóðum og hlutirnir gerast

1. Ísland. VÁ þetta var geðveikt flott hjá þeim. Flott útsett fyrir utan eina aukaslaufu í laginu hjá Frikka. Flottasta lag sem Íslendingar hafa sent út. Búningar flottir þó set ég út á skóna hjá Regínu, synd að láta hana klæðast einhverju sem dregur athygli frá fegurð hennar. Er hún á lausu?? einhver??
Ísland fer áfram og fer langt á laugardaginn. Ég segi 6 sæti.

2. Svíþjóð. Þessi helv...belja.....búið að marg strekkja á smettinu hennar. Ágætislag dálítið í takt við það sem svíjar hafa gert. Það var þó dálítið cool þegar hún var svarthvít og kom svo í lit. En ég get ekki fyrirgefið henni að vinna Selmu árið 99 með stolið lag. :)
Svíar fara áfram en þetta lag vinnur ekki keppnina.

3 Turkey. Puff eitthvað glamur sem ég er ekki að fíla.
Fer ekki áfram

4. Úkraína. Uss svaka skvísa maður....með ágætis lag. Hún færi áfram á útlitinu ef hún væri með lélegt lag. En hún er með gott lag og útlitið skemmir ekki.
Fer áfram

5. Litháar. Sjitt maður þvílíkt garnagaul maður.
Fer ekki áfram

6. Albanía. Yngsti keppandinn 16 ára. Neibb ekki fyrir minn smekk. Lagið leiðinlegt og barnaleg rödd hennar að gera gat á eyrun mín. Plús ljótt svið og lélegt show.
Fer ekki áfram.

7. Sviss. Söngvarinn er ekki að ráða við lagið. Í rólega hlutanum í enda hverrar falsettu þá kom einhver bjögun í röddina sem minnti mig á mútur í unglingi. Svo hresstist upp á lagið og þá var þetta öllu betra hjá honum. Showið var frekar lazy, flugeldarnir pössuðu engan veginn inn í þetta því lagið var of rólegt fyrir fyrir flugelda.
Fer áfram

8. Tékkar. Hólí sjitt.....engnir gúmmítékkar þarna ....... VÁ þvílíkar skutlur! Flott show, flugeldarnir flottir, flott lag, flottar skutlur...hvað getur klilkkað?
Fer áfram.

9. Hvít Rússar. Hasta la vista ??? hvaða bull er þetta? Ég hélt að Arnold Swartznager væri bara mættur þarna :) Léleg klisja en ???
Fer áfram

10. Latvia. Flott lag en leiðinlegur söngur og léleg framsetning. Held að sjálfsmorð á meðal sjóræningja aukist  til muna í kvöld...a.m.k þeir sjóræningjar sem sáu þetta í kvöld hafa hoppað í sjóinn.
Fer áfram.

11. Króatía. Elsti keppandinn :) hehehe já þetta er ábyggilega vinsælt hjá þessu mafíuliði þarna í austri en þeir fara áfram á gamla kallinum :) hehheehe snilldin ein þegar hann fór að skratsa á gamla fóninum.
Fer áfram

12. Búlgaría. Jáááááá sææællllll.....þetta líkar mér. Flott sjóv grúví lag sem minnti mig á kafla á eina af mínum uppáhald´s hljómsveitum Prodigy. Söngkonan mætti vera aðeins betri og með meira seiðandi rödd.
Fer áfram

13. Danmörk. Ja eine pulse med podeidoseled tak tak. Já ok, allt í lagi ágætis melódía.
Fer áfram

14. Georgía. Já nei takk.
Fer ekki áfram.

15. Hungary. Ó nei, ég varð að lækka í græjunum. Snilldin ein þó það sem Simmi sagði með tölfræðina að þetta er í fyrsta sinn síðan hvað?? mig minnir að hanna hafi sagt síðan 1976 sem að stór kertastjaki er hluti af sviðsmyndinni. Simmi sagði að sá/sú sem heldur utan um tölfræðina sé alveg að vinna fyrir kaupinu sínu :) heheheheh
Fer ekki áfram

16. Malta. Vodka heitir lagið og er ágætt en söngurinn ekki góður. Söngkonan þó í myndalegrikantinum ;)
Fer ekki áfram

17. Kýpur. Lítur út eins og silungur :) hehehehehe Simmi er alveg að meika það sem kynnir. Alveg glatað með stóru F-i.
Fer ekki áfram

Auglýsingar 2 lög eftir

18. Makedónía. Ef þetta fer áfram þá heiti ég Úgí Úganov frá Úkraínu. Þetta er nú meira gaulið.
Fer ekki áfram.

19. Portúgal. Say no more
Fer ekki áfram

Jæja þá kemur það í ljós á eftir hvaða þjóðir fara áfram og þá kemur einnig í ljós hversu mikill spámaður ég er :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 15:47:24 / tradenbloggen

What's up Snickersface?

Jæja sumarfríið búið og vonandi bara brakandi blíða framundan á klakanum. Það var geggjað í US and A! Ferðin hefði ekki getað verið betri (nú er ég að ljúga, hefði verið betri ef ég hefði kvk við hönd) ferðafélagarnir algjörir snillingar, húsið frábært, maturinn geðveikur osfrv. Hvað stóð uppúr ? Jú kanski þegar við hittum á VIN DISEL á Miami :) það er allavega ofarlega eins og afmælisdagur Ómars og allt bullið í okkur. Annars var það nú frekar einmannalegt að vakna fyrsta daginn á Íslandi eftir 20 daga sambúð með Bjarmalandsfamily hehehehe :)
Það er annars mikið að gerast á næstunni. Boltinn á Íslandi er að byrja að rúlla og Enski boltinn að klárast á morgun, Júróvisjon næstu helgi, úrslit í meistaradeildinni 21 maí og þá er farið að styttast allverulega í Sjóarann Síkáta. Svo er sjóstangarveiðimót næstu helgi sem ég ætla að reyna að taka þátt í ef ég verð ekki að vinna.
Við Ómmi keyptum okkur sjóveiðistangir úti ag allt til sjóstangveiði og verðuir farið á sjóinn í sumar. Vonandi finnum við bát sem fæst á góðu verði svo við verðum ekki að reiða á aðra með far á hafið.
Annars er ég mikið að pæla í þessari skoðanakönnun hér til hliðar, ég STÓR efa það að aðeins 1 stelpa af 4 vakni gröð á morgnana. Annað hvort eru eintómar Ömmur hérna inni að taka þátt í könnuninni eða það þorir engin af 3 að segja satt :) hehehe. En svar strákana kemur mér lítið á óvart. En ég ætla að krifja þetta mál betur með annari könnun sem gefur okkur betri mynd af þessu, svo endilega takið þátt :d

Orð dagsins: Vanillufés

Spakmæli dagsins: Betra er að sofa hjá en sitja hjá.

Kveðja Tradenmannen

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 04:21:19 / tradenbloggen

Það kostar kúk og kanil að búa hér :)

Hehehehe talandi um kanil, hér er allt til í kanil. Kanilsnúðar, stangir, tyggjó, morgunkorn, tannkrem, jógúrt, kringlur, drykkir og ég veit ekki hvað er ekki til í kanil.....ekki skrítið að Bandaríkjamaðurinn er kallaður KANI(LL)

En annars er búið að vera mikið fjör og mikið grín í ferðinni. Við fórum í Universal garðinn í vikunni og á Daytonaströndina þar sem við Ómar kepptum í kastalasmíði. Auðvitað prófuðum við dragsterinn :) shit maður þetta var mesta hröðun sem ég hef upplifað ca 120 km hraði á 3.2 sek :) eigum við eh að ræða það? Nei

Svo  varð gjemli kjellinn hann Ómar 30 ára í gær 23. apríl. Við Begga skipulögðum smá dagskrá fyrir kjellinn :) Í stuttu máli þá ætla ég að leyfa Beggubloggi að segja betur frá því :)
Annars er ferðin ca hálfnuð og það á eftir að fara á Miami og í Disney og og og kaupa aðeins meira :)
Við Ommi erum að missa okkur í tollhliðunum á hraðbrautunum, í hvert skipti sem er stoppað í hliði og afgreiðslumanni er réttur peningur (tekur ca 10 sek) þá er sagt:
,,Hello there, how are you this afternoon yes olrætí then'' í einni runu (eins og Ave Ventura gerði svo snilldarlega) En það eru misjafnar viðtökur við því og kaninn er ekkert að skilja húmorinn okkar hehehehe :)


En gott í bili

Bestu kveðju upp á klakann úr steikinni á Florida ;)

.....og Bjarki ekki lemja löggurnar :)



» 11 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 04:21:56 / tradenbloggen

Hér er heitt og hér er feitt að vera :)

Jess my name is Borat and Im in US and A :) .......já í US and A nánar tiltekið í súkkulaðifylkinu er heitt og feitt að búa í. Mér finnst ég vera að springa þó svo að ég sippa og tek æfingar á morgnana með tilheyrandi hneikslan hjá Ómari (í fyrstu) sem svo breyttist. Þegar hann spurði mig hvern döfulinn ég væri að gera þá sagði ég að ég væri að leggja inn svo ég gæti tekið út í góðum matarskömmtum samviskulaust. Þetta varð til þess að Ómar kallinn er farinn að taka í sippubandið og hann fór út að hjóla í morgun :) seigur kallinn hehehehe.
Núna eru ca 2 vikur eftir og það er búið að versla pínulítið og slappa vel af. Í dag fórum við niðrá Cocoa Beach sem er lítill strandbær rétt utan við Orlando. Það var magnað að sjá lífið í bænum, við borðuðum á Denny's stað þarna og það var eins og maður var að tala við algjöra sveitadurga. Bæði lyktin, hvernig fólkið leit út og talaði gerði það að verkum að það væri eins og ég væri staddur í einhverri kvikmynd. Á næsta borði við okkur á staðnum var ca 65 ára gömul kelling með háöldruðum faðir sínum að við höldum sem var umþaðbil að deyja miðað við útlitið á honum. Hann hefur örugglega þurft að borga matinn fyrirfram svo að staðurinn yrði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni ef hann tæki uppá að hrökkva uppaf á staðnum. Nema hvað að kallinn leit út alveg eins og Mr Magoo og gekk við staf. Hann átti erfitt með hreyfingu greyjið. En þegar við Ómar stóðum upp og fórum að borga matinn og Begga var eftir við borðið að græja Bríeti úr barnastólnum fór Mr Magoo að reyna að standa á fætur. Næsta sem við Ómar vissum var að Begga kom til okkar skellihlæjandi en með hálfgerðan hroll, því að þegar Mr Magoo reyndi að standa upp þá kom í ljós að hann var ekki í neinum nærbuxum :) Þannig var að hann var þarna í stuttbuxum og við það að reyna að standa upp þá kom draslið út á honum heheheheh kjell greyjið.
Á morgun (sunnudag) ætlum við niðrá Daytona á ströndina þar og kíkja á Nascar kappakstursbrautina þar. Svo ætlar Ómar að sýna mér Dragster bíla sem við fáum að prófa upptakið  einhverri braut.
En gott í bili frá Florida........Gunna til hamingju með afmælið á föstudaginn ;) þú ert alveg að ná mér heheheh:haha:
Later

» 16 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 17:41:16 / tradenbloggen

Florida á morgun :)

Jæja kæru hálsar og aðrir líkamspartar, kjellinn er mættur á bloggið. Legg upp í ferðalag á morgun  til lands sem er kennt við band(spotta) og í fylki sem dró upp nafn af frægu íslensku súkkulaði án nokkurra heimilda en fylkið heitir Florida. Ég verð þó að segja að ég hef ekki hugmynd um hvað þeir voru að hugsa sem nefndu borgina sem heitir Orlando, en mig grunar þó að þeir hafi verið á sveppatrippi þegar þeir fundu upp nafnið. En þó svo að saga þessa nafna sé svona skrítin þá ætla ég að hafa það gott þarna í sólinni og skemmta mér vel með vinum mínum :)
Hvað er nú búið að gerast síðan ég bloggaði síðast?? Jú vörubílstjórar eru að mótmæla. Ég studdi þá heilshugar, þangað til ég sá þennan háskaakstur inn á Ártúnsbrekkuna þegar einhverjir bjánar úr hópnum keyrðu í veg fyrir umferð sem átti forgang. Bara þetta atriði setur stuðninginn sem þeir áttu hjá fólkinu í landinu í tunnuna. Ég reyndar ætla að styðja þá áfram því þetta er í mína þágu líka en ef svona asnaskapur gerist aftur þá fer stuningur minn alveg. En afþví að vörubílstjórar kvarta um dýran rekstrarkostnað, afhverju lækka þeir ekki rekstrarkostnaðinn með því að kaupa færri krómgrindur og færri kastara? Og skreyti bílana aðeins minna, menn eru að láta mála vagnana í sam lit og bílana, láta mála grillin á bílunum eh auðruvísi og tala nú ekki um allar límklessurnar um alla bílana. Þessir hlutir kosta! En þetta voru bara tillögur frá mér til að lækka kostnaðinn, en ég efast um að þeir hlusti á mig :)

En hvað er málið með snjóinn úti? Maður verður bara hræddur um að Lóan lendi í klóm Snjótittlingsins og verði jafnvel fyrir kynferðislegri áreittni og að til verði Snjólóutittlingur. En hvað er ég að hafa áhyggjur af veðrinu :) er að fara í sólina í súkkulaðifylkinu...hehehe

En gott í bili, ég blogga kanski frá súkkulaðifylkinu....aldrei að vita

Hilsen

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 01:49:14 / tradenbloggen

This is my life

Þá er það á hreinu hvaða lag fer til Serbíu að keppa í Júróvisjon. Ég var alveg viss um það hvaða lag færi út áður en kvöldið byrjaði. Svo þegar allir höfðu lokið flutningi þá spáði ég að hohoho væri í 1 sæti júróbandið í 2 sæti og dr spock í 3ja. En þegar ég sá dómana hjá sérfræðingunum þá var mér öllum lokið. Dr spock með 12 stig hjá Erpi og Þorvaldi usssssss........það leist mér ekki á. Ég spáði Dr spock í 3ja sæti bara út af því að ég grunaði að mikill hluti íslendinga vill senda einhverja vitleysu út rétt eins og þegar Silvía fór út. En ég verð að viðurkenna að this is my life er betra lag og betur flutt en hohoho og grunaði mig án þess að ég hafði nokkuð fyrir mér í því að Páll Óskar hafi komið eh nærri nýju útgáfuni. Það kom svo í ljós þegar sigurlagið var að enda að þá kom hann inn og söng síðasta bútinn með Frikka og Reggu.

Ég verð þó að segja að upphafsatriðið var geðveikt og öll umgjörðin mjög flott. Þetta er ekki líkt RUV að gera hluti með þessum glans. :) Svo er Gleðibankinn mikið flottari í flutningi Páls Óskars  :)  og það hefði mátt hvíla Eyfa, hann fer í mína fínustu.

Eigum við að ræða pólitík ?? ummmmm já er það ekki :) bara smá.

Ég er ekkert smá ánægður með Villa Vill, hann er að jarða Sjálfstæðisflokkinn með húð og hári. Og Geir H þorir ekkert að gera í málinu. Grætur bara yfir því hvað fjölmiðlar eru dónalegir og menn eru vondir við Gísla Martein. Þegar menn gefa sig á annað borð í framlínu í pólitík þá þarf að byggja sér góðan skráp og gera sér í leiðini grein fyrir því að það verði deilt á menn og menn spurðir óþægilegra spurninga á þeim stöðum sem í þá næst. Geir sem var staddur á eh sýningu var spurður hvort hann væri á móti því að Villi héldi áfram sem oddviti  flokksins í borgini. Í stað þess að svara bara stutt og skorinort þá kvartaði hann bara undan dónaskap. Fréttamenn geta jú verið mjög ágengir og verða ágengnari sérstaklega þegar það næst aldrei í menn eins og reynst hefur með Sjálfstæðismenn undanfarið í tengslum við borgarmálin. Auðvitað vilja Sjálfstæðismennn bara hverfa af yfirborði jarðar þegar svona ógöngur duna yfir, þeir eru hreinlega ekki vanir svona ógöngum og verður fróðlegt að sjá hvernig þeir stíga upp úr ógöngunum. En að svara fréttamönnum vel og faglega og vera í það vel undirbúinn, er besta tækifærið sem þeir fá til að árétta sín mál og reyna að breyta almenningsáliti.

Um bæjarpólitíkina hér í bæ þá eru spennandi tímar framundan. Halda menn áfram að gera sem minnst eða ætla menn að rífa sig upp á rassgatinu og fara að framkvæma? Við frestum ekki framtíðinni, nei það er sko alveg á hreinu. Framtíðn kemur og það er í okkar höndum hvernig hún mótast og hvernig hún verður. Með sama lágmarksframkvæmdaraðgerð núverandi meirihluta líst mér ekki vel á framtíð þessa bæjarfélags. Við það að keppast við að einhverjar tölur á pappír líti sem best út þá hjökkum við í sama fari áfram, rétt eins og að reyna að keyra sjálfskiptan bíl í N-inu. Það er hagkvæmast og þú kemst ekki langt, en með að setja hann í d-ið þá eyðir hann aðeins meir og kemst lengra. Það er einmitt það sem þarf hér í bæ. Setja í d-ið og ná lengra og það kostar peninga. Ég er ekki á móti aðhaldi í rekstri en það kostar peninga að græða peninga og þeir koma kanski ekki inn á sama ári og þeim er eytt við rekstur bæjarfélags.

Jæja nú er ég orðin eins og Össur :) skrifa á nóttinni og sef á daginn hehehehehe. Nú ætla ég að fara að horfa á box á Sýn. Klitskó að fara að berja einhvern. Já sæll það er kominn stafa og orðateljari hérna neðst á síðunni og núna er pistillinn orðinn að 669 orðum og 3515 stöfum.

Orð dagsins: Bjáni

Spakmæli dagsins : (í tilefni Júróvisjonskvölds) Oft fara hommar á bak við menn.

Kveðja Tradenmannenenenenen

» 26 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 17:41:40 / tradenbloggen

Jæja já :)

Ég er búinn að finna uppáhaldsútvarpsstöðina mína.......fænalí! Það er Akureyrska netútvarpsstöðin Club Voice en það er hægt að smella á hana á voice.is. Það er greinilega margt gott sem kemur frá Akureyri :) bara spurning um að fara þangað og finna sér dömu :haha:
Annars var ég á þorrablóti í gærkveldi með fjölskyldu pabba og var það bara þræl skemmtilegt var reyndar kominn hjem um 11 leytið en það var bara nice. Mér var reyndar boðið að taka vakt á sjúkrabíl í Reykjavík síðustu nótt en ég tók fjölskylduna framyfir. Það var mikið að gera samkvæmt fjölmiðlum í Rvk í gær, bara 40 sjúkraflutningar.

Ég verð nú að minnast á það að ég rótbustaði Bensen í Síkvens á föstudagskvöld í Bjarmó.......slíkir yfirburðir hafa vart sést í síkvens á því heimili 8)

Pólitík......eigum við eh að ræða hana ? Nei ekki núna......tölum frekar um íþróttir. Körfuboltinn rúllar og ætla ég sko að mæta annaðkvöld en þá mætum við Fjölnir. Strákarnir hafa verið að spila vel upp á síðkastið og unnu t.a.m. síðasta leik upp í Borgarnesi. Einnig hafa stelpurnar verið að standa sig vel og leika í höllinni næstu helgi, svo er hörkuleikur á miðvikudagskvöldið hjá þeim á móti Keflavík.

Hehe ég smellti mér í Badminton síðasta Miðvikudagskvöld uppí íþróttahúsi.....það var bara snilld vann Kára 5-2 í leikjum talið og svo tók ég leik við Bensen og ég rétt vann hana 15-14 :) en það var leikur án reglna og það er erfiðara en að spila með reglur. Svo forum við Kári í körfuleik upp í 10 stig og 1 stig fyrir körfuna. Ég hljóma frekar montinn en ég vann hann 10-9 :) Ég varð að segja frá þessu því að ég man ekki eftir að hafa unnið nokkurn mann í körfu. Og ekki gekk mér vel í Badminton um daginn í leiktímanum í herþjálfuninni. Tapaði 3 og vann 2.

Ég verð að segja frá myndunum sem PET sendi mér um dagin :) (Takk fyrir PET) þvílík snilld :haha: Það voru myndir af okkur krökkunum í Unglingadeildinni og vorum við að fara á Landsmót í Reyðarfyrði árið 1996. Komum við í Reynishlíð í Vík í Myrdal og gistum þar eina nótt. Ég og Ómar fundum einhver gömul dress og smelltum okkur í þau og létum eins og fávitar :) Ég man eftir því líka þarna í Reynishlíð sem er bara svona pokagisting, að í næsta herbergi var þýskt par. Úr herberginu heyrðust einhverjir skruðningar og læti og við báðum Ollu að hlera hvað þau væru að segja því hún var þýskumælandi (þau töluðu það hátt að það heyrðist yfir) hún hlustaði og brosti eitthvað. Við hin héldum að þau væru eh að elskast og svo rekur Olla upp mikinn svip og segir 8| ,, hann ætlar að sprauta yfir hana!'' Og við hin vissum þá nákvæmlega hvað væri í gangi, þurfti ekkert að segja okkur meir.:haha: Nema hvað að hurðinni í herberginu er rokið upp og stelpan hleypur út og hann á eftir henni með tannkremstúpu og sagðist ætla að sprauta úr henni yfir hana :) Svona er ímyndunaraflið sterkt í unga fólkinu.

Ég kem kanski inná pólitík í næsta bloggi :)

Orð dagsins: hryssingskuldi

Spakmæli dagsins:  Oft eru dáin hjón lík.

Kveðja
Tradenmannen




» 21 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 01:30:29 / tradenbloggen

Fimmta tilraun !

Jæja ef þetta kemst til skila þá er loksins búið að laga síðuna. Ég komst ekki inn á ritstjórn, svo komst ég inn og er búinn að blogga 4x og það skilaði sér ekki. En vonandi er þetta komið í lag og ég mun blogga eftir helgi. Mikil vinna um helgina :)

Orð dagsins: Súrmatur

Spakmæli dagsins: Oft eru bílstjórar útkeyrðir

Kveðja Mr Tradenmannen


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 18:27:59 / tradenbloggen

Annað blogg ársins !!!!

Þetta gengur ekki, annað blogg ársins og það er kominn 11. janúar. Verð að fara að bæta mig, annars er búið að vera nóg um að vera. Var að klára stutt endurmenntunarnámskeið í Sjúkraflutningaskólanum.......vá sjáiði lengdina á orðunum!!!! 22 stafir það fyrra og 23 stafir seinna orðið....já fínt eigum við að ræða það eitthvað? Hummm uuuuu leyfð mér að hugsa uuu NEI

Nú er herþjálfunin byrjuð á fullu og fullt af fólki sem skráði sig til leiks, það eru um 15 manns að æfa og vonandi bætast fleirri við. Þetta er bara gaman. Reyndar byrjaði þetta ekkert gæfulega hjá mér því að í fyrsta tíma eftir jól þá var þolpróf og ég var hálfnaður þegar ég varð að fara heim á dolluna :haha: fékk svona rosalega magapínu, jólasteikin og sætindin búin að hristast í vænan kokteilsjeik með súkkulaðisósu. Núna er steikin og sjeikin einhversstaðar í Atlantshafinu :haha:

Ég get ekki annað en minnst á framtak Sunddeildarinnar hérna í Grindavík. Þau afhentu 2 miljónir sem þau söfnuðu með áheitasundi til fjölskyldu Andra Meyvantssonar. Þetta er langt um meira en ég þorði að giska á að þau hefðu safnað. Þetta er einstakt afrek og einstakt framtak hjá þessu unga fólki.

Ég verð að blogga um þessa blessuðu ráðningu í stöðu héraðsdómara, staða sem Þorsteinn Davíðsson fékk. Eru menn alveg búnir að missa sig? Af 4 umsækjendum var hann talinn hæfur sá næsti talinn vel hæfur og tveir taldir MJÖG HÆFIR! Þeir MJÖG HÆFU eru hundsaðir og þessi sem nefndinni þótti fjórði hæfastur ráðinn. Svo reynir settur dómsmálaráðherra, Árni Mattísen, að rökstyðja þetta og tekst ekki betur til en að það springur á öðrum kútnum sem heldur honum á floti í drullupollinum. Síðasti kúturinn springur og hann sekkur í drullupollinn ef þessir blessuðu samfylkingaráðherrar ropa upp úr sér áliti sínu á þessu máli. En einhvernveginn þá komast þeir ráðherrar undan því að svara fréttamönnum. Þetta fer að verða hálf neyðarlegt fyrir smfylkingarráðherrana að í hvert skipti sem þeir eru spurðir um erfið mál og þeir svara því til að þeir vilji ekki tjá sig um málið þá sé svarið vitað í raun!  Þeir eru ekki ánægðir með viðkomandi mál og þora ekki að segja það. Mér finnst það eigi að vera til í lögum að ráðherrar og þingmenn svari málum sem borin eru upp fyrir þau. Það á ekki að vera hægt að fólkið sem við kjósum til að ráða landinu geti bara flæmst undan án nokkurra orða. Það er mjög óábyrg stjórnsýsla. Og hananú! Tradenmannen á þing! :haha:

Já og enn eitt um stjórnmál, ein af myndarlegustu ráðherrum fyrr og síðar, hún Þorgerður Katrín er orðin dálítið sjúskuð. Spurning hvort það sé svo mikið að gera hjá henni að hún megi ekki vera að hugsa um útlitið. Skilaboð frá Tradenmannen til Toggu: Stytta toppinn og greiða til hliðar, þessi miðjuskipting er ekki að fúnkera hjá þér. Hárið á henni er eins og illavaxið fax á hesti með skeifhimnubólgu........ :lol:

En orð dagsins er..........Álpappír

Spakmæli dagsins: Sjaldan standa 5 ofurvaxin hár á nauðasköllóttum manni.

Æm át!

 


» 21 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 15:39:58 / tradenbloggen

Gleðilegt nýtt ár !!

.......og takk fyrir það gamla :) Árið 2008 byrjar með miklum stæl hjá mér. Vaknaði upp á nýársdegi með flensupest :) NICEONE! En það þýðir ekki að gráta það, fall er fararheill svo ég vona að nýtt ár verði mér gott.

Ég var að spá í að gera smá samantekt um hvað stóð uppúr á árinu 2007 :haha: Tékk ðiss át!

Handsal ársins: Handsal þeirra Binga og Villa Vill sem átti sér í stað í gegn um síma

Tap ársins: Framsóknarflokkurinn í síðustu þingkosningum

Útilega ársins: Árnesferðin með klúbbnum

Íþróttamaður ársins: Margrét Lára Viðarsdóttir.  Get ekki verið meira sammála kjörinu. Því lík stjarna sem hún er og karakter usss og minnist ekki á lúkkið maður......er hún á lausu?? :)

Körfuboltamaður Grindavíkur: Björn Steinar Brynjólfsson baráttuhundur dauðans.

Fótboltamaður Grindavíkur: Jósef Kr Jósefsson

Deild ársins: Sunddeild Grindavíkur, þarf ekki að segja meir

Þjálfari ársins: Magnús Már Jakobsson maðurinn er mættur kl 06 á morgnana að kenna sund, vinnur vinnu sína í Lóninu og er svo mættur að kenna ellismellum sund á kvöldin :) Svo kann hann að láta í sér heyra :haha:

Maðkur í mysu ársins: Sala opinbera eigna ríkisins á Vallarheiði.

Sala ársins: Sala Grindavíkur á hlut HS. Þarna stóðu allir sem einn saman að hag Grindavíkur.

Stofnun ársins: Stofnun Suðurlinda sem er í eigu Grindavíkur Voga og Hafnarfjarðar.

Erlenda lag ársins: Love stoned - JT í Tiesto remix útgáfu

Íslenska lag ársins: Allt fyrir ástina - Njáll Páskar

Tónleikar ársins: Ljótu hálvitarnir og Hvanndalsbræður á NASA

Uppistand ársins: Paplo Fransisco í Háskólabíói

Grey ársins: Geir Ólafsson

Klúður ársins: Sameining Rey og GGE

Rúntur ársins: Þegar ég og Ómmi fórum í Hafnarfjörð að ná í hásingu á súkkuna mína. Á heimleiðinni fuku svo fyndnar sögur að pulsurnar sem við keyptum í Essostöðinni í Hfj voru kaldar þegar við loksins gátum borðað þær. Á meðan hláturinn stóð sem hæðst lentum við næstum því í árekstri.

Spakmæli ársins: Þar sem 1 Framsóknarmaður er, þar er einmannalegt. Þar sem 2 Framsóknarmenn eru, þar er 100% mæting :haha:

Þetta er skoðun Tradenbloggen.is og endurspeglar á engan hátt álit þjóðarinnar né annara. Viljiru stefna Tradenbloggen.is farðu þá á tradenbloggen.is/lögfræðingar. Viljiru gera athugasemd eða leiðrétta skaltu þá commenta. Press 5 for english

Adios amigos

 


» 28 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 09:07:39 / tradenbloggen

Gleðileg jól !

Jæja pípol....eftir c.a. 9 klukkustundir hringja bjöllur inn jólin og maður getur farið að slafra í sig jólasteikinni :) Fænalí. Ég vaknaði eins og barn kl 08:00 í morgun og fór að horfa á skrípó :haha:..............nei annars var planið að ganga á Þorbjörninn og enda í Bláa lóninu. En því miður þá komu upp veikindi í hópnum svo það verður ekkert úr göngunni.

Á Þorláksmessu gerði ég lítið af því að borða skötu :) fékk mér bara pulsu í Skeifunni í hádeginu og Pizzu úr Nettó í kvöldmat. Svo fór dagurinn í að bóna bílinn og þrífa heimilið. Ég sé það alveg fyrir mér að Hólavellir 18 verði að alvöru heimili árið 2008, eða að minsta kostu verði tekið upp úr kössunum það árið.

Nú er bara eftir að dreyfa jólakortunum og jólagjöfunum, og pakka inn nokkrum gjöfum. Þar næst baða sig og henda tönnunum upp í sig, setja á sig kolluna og mála á sig augnbrýr. Að lokum hringja svo í Adda, Báru, Þránd og Þrillbert og óska þeim gleðilegra jóla :)

Ég óska öllum gestum Tradenbloggens.is gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þakka heimsókninar á líðandi ári.

Jólakveðjur Tradenmannen 8)


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 35502
Dagsetning
23. febrúar 2012
Könnun
Hver ertu?